Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 15. október 2009 07:01
Magnús Már Einarsson
ÍR vann úrslitaleik 30 ára og eldri en Keflavík fékk bikarinn
Mynd: Keflavík
Mynd: ÍR
Úrslistaleikurinn í eldri flokki karla, 30 ára og eldri, fór fram í Egilshöll í gærkvöldi. ÍR lagði þar Keflavík 6-5 eftir vítaspyrnukeppni en staðan eftir venjulegan leiktíma var 2-2 og eftir framleningu 3-3.

Þrátt fyrir sigurinn þá fengu ÍR-ingar ekki Íslandsmeistarabikarinn heldur Keflvíkingar. Ástæðan er sú að ÍR-ingar mættu ekki í einn leik í sumar vegna manneklu og reglur kveða á um að ef að lið mætir ekki til leiks í leik á tímabilinu þá geti það ekki orðið Íslandsmeistari.

Í leiknum í gær skoruðu Jakob Már Jónharðsson, Guðmundur Þór Brynjarsson og Gunnar Oddsson fyrir Keflavík áður en kom að vítaspyrnukeppni.

Geir Brynjólfsson skoraði tvívegis fyrir ÍR og Baldvin Jón Hallgrímsson einu sinni áður en kom að vítaspyrnukeppninni.

Geir Brynjólfsson, Jón Þór Eyjólfsson og Baldvin Jón Hallgrímsson skoruðu í vítaspyrnukeppninni fyrir ÍR. Ragnar Steinarsson skoraði úr fyrstu spyrnu Keflavíkur en Þorleifur Óskarsson varði spyrnu númer tvö frá Gunnari Oddssyni.

Hér til hliðar má sjá mynd af liði Keflvíkinga eftir verðlaunaafhendingu. Efri röð frá vinstri:Ragnar Steinarsson, Ólafur Þór Gylfason, Guðmundur Þór Brynjarsson, Jóhann B. Magnússon, Kristinn Guðbrandsson, Jakob Már Jónharðsson og Gunnar Oddsson.
Neðri röð frá vinstri: Andri Scheving (liðstjóri), Sigmar Schveving, Ingvar Georgsson, Kristján Geirsson, Gunnar Magnús Jónsson og Jóhann Steinarsson. Á myndina vantar Ólaf Pétursson.
Slapp
banner
banner
banner