Heimild: AFP
Vincenzo Iaquinta, framherji Juventus, mun fara í aðgerð á hné síðar í dag.
Iaquinta meiddist á æfingu á laugardaginn og missti af þeim sökum af leiknum gegn Siena í fyrradag.
Ljóst er að hann verður frá keppni í að minnsta kosti mánuð eftir aðgerðina og mun hann því missa af nokkrum leikjum í Serie A sem og leikjum gegn Maccabi Haifa og Bordeaux í Meistaradeildinni.
Meiðsli Iaquinta koma á slæmum tíma fyrir Juventus því að Alessandro Del Piero er einnig frá keppni vegna meiðsla.
Athugasemdir