Heimild: Bold.dk
Líklegast lánaður til enska liðsins út tímabilið
Enska 1. deildarliðið Reading er við það að komast að samkomulagi við danska úrvalsdeildarliðið Esbjerg um að fá framherjann Gunnar Heiðar Þorvaldsson leigðan út keppnistímabilið. Frá þessu er greint á vefmiðlinum Bold.dk.
Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Gunnars, segir að leikmaðurinn eigi nú í viðræðum við Reading um kaup og kjör en samkomulag milli liðanna um lánsskiptin er nánast í höfn.
Heimildir Fótbolti.net herma að Gunnar muni fara fljótlega til Reading og æfa með liðinu þar til hann verður löglegur leikmaður þess í byrjun næsta árs.
Athugasemdir