Heimild: Sky
Rafa Benitez stjóri Liverpool sagði eftir jafntefli liðsins við Blackburn í dag að liðið sé að bæta sig.
,,Ég er svolítið vonsvikinn, mér fannst eins og við hefðum getað unnið þennan leik," sagði Benitez.
,,Í fyrri hálfleik spiluðum við ekki vel, þeir voru fastir fyrir og við áttum von á því."
,,Eftir að við settum Ngog og Nabil (El Zhar) inn á vorum við hættulegri og fengum færi til að vinna. Þeir fengu tvær skyndisóknir sem hefði getað kostað okkur stigið. Við spiluðum mun betur í síðari hálfleik."
,,Við héldum hreinu og spiluðum betri fótbolta en oft áður, við erum að bæta okkur. Þú verður vinna þessa leiki, við fengum færi en þú verður að nýta þau til að vinna leiki."
Athugasemdir