Heimild: Sky
Mathieu Flamini, miðjumaður AC Milan, er á leið til Manchester City á láni út tímabilið en þetta segja heimildir Sky Sports News.
Flamini leikur vanalega aftarlega á miðjunni en City fékk Patrick Vieira í þá stöðu fyrr í þessum mánuði.
Talið er að Roberto Mancini, stjóri City, ætli að prófa Flamini í hægri bakverði en þar lék hann síðari hluta síðasta tímabils hjá AC Milan með góðum árangri.
Þessi 25 ára gamli Frakki er ekki inni i myndinni hjá Leonardo þjálfara AC Milan og því gæti hann fengið að fara á láni.
Flamini þekkir vel til á Englandi en hann lék yfir 100 leiki með Arsenal frá 2004-2008.
Athugasemdir