Haukar 2-2 FH
0-1 Atli Viðar Björnsson
1-1 Hilmar Geir Eiðsson
2-1 Hilmar Emilsson
2-2 Matthías Vilhjálmson
Það var mikill hiti milli leikmanna þegar FH og Haukar skildu jöfn í miklum hitaleik í Kórnum í Kópavogi í kvöld.
0-1 Atli Viðar Björnsson
1-1 Hilmar Geir Eiðsson
2-1 Hilmar Emilsson
2-2 Matthías Vilhjálmson
Það var mikill hiti milli leikmanna þegar FH og Haukar skildu jöfn í miklum hitaleik í Kórnum í Kópavogi í kvöld.
Bæði lið eru úr Hafnarfirði og munu bæði leika í efstu deild í sumar sem hefur ekki gerst í fjölda ára. Mikill fjöldi áhorfenda lagði för sína í Kórinn til að sjá þennan æfingaleik og heyrðist vel í fólki.
Atli Viðar Björnsson kom FH-ingum yfir í upphafi leiksins en Hilmar Geir Eiðsson jafnaði metin í byrjun síðari hálfleiks. Hilmar Emilsson kom Haukum svo yfir um miðjan síðari hálfleikinn og eftir það færðist mikil spenna í leikinn.
Greinilegt var að leikmenn liðanna lögðu allt sitt í leikinn þrátt fyrir að um æfingaleik í janúar væri að ræða og mátti sjá harkalegar tæklingar fljúga og leikmönnum liðanna lenti nokkrum sinnum saman.
FH-ingar náðu svo að jafna metin í uppbótartíma en þar var að verki Matthías Vilhjálmsson og lokastaðan 2-2 í leik sem gefur góð fyrirheit um grannaslagi liðanna í sumar.
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected].




