Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 04. febrúar 2010 23:26
Hafliði Breiðfjörð
Reykjavíkurmótið: Þróttur vann sigur á ÍR
Hörður Sigurjón Bjarnason skoraði tvö mörk fyrir Þrótt í leiknum.
Hörður Sigurjón Bjarnason skoraði tvö mörk fyrir Þrótt í leiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur 4-1 ÍR
0-1 Haukur Ólafsson
1-1 Eysteinn Pétur Lárusson
2-1 Andrés Vilhjálmsson
3-1 Hörður Sigurjón Bjarnason
4-1 Hörður Sigurjón Bjarnason

Þróttur vann góðan sigur á ÍR í Reykjavíkurmóti karla í kvöld en leiknum lauk með 4-1 sigri Þróttar. Bæði lið leika í 1. deild karla næsta sumar.

ÍR-ingar höfðu reyndar náð forystunni með marki Hauks Ólafssonar en þá var komið að Þrótturum. Fyrri hálfleikurinn var nokkuð jafn en fleiri mörk voru ekki skoruð svo ÍR-ingar leiddu 0-1 í hálfleik.

Eysteinn Pétur Lárusson sem hafði komið inná sem varamaður jafnaði metin fyrir Þrótt í síðari hálfleiknum og Andrés Vilhjálmsson kom þeim yfir.

Hörður Sigurjón Bjarnason sem kom til Þróttar í vetur skoraði svo tvö mörk til viðbótar.

Magnús Már Lúðvíksson hafði reyndar skapað þau mörk fyrir hann því í bæði skiptin lagði hann boltann á Hörð fyrir opnu marki og Hörður kláraði vel.

Lokastaðan 4-1 og Þróttur kominn með fjögur stig í riðlinum, í þriðja sæti. ÍR er enn í fimmta og neðsta sætinu án stiga.

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected].
Slapp
banner
banner