Heimild: Goal.com
Carlos Queiroz landsliðsþjálfari Portúgala lenti í slagsmálum við blaðamanninn Jorge Baptista á flugvelli í Lisbon í gærmorgun.
Queiroz og Baptista sátu nálægt hvorum öðrum og biðu eftir að komast í flug til Varsjá þar sem drátturinn fyrir undankeppni EM 2012 fer fram í dag.
Menn vilja meina að slagsmálin hafi byrjað eftir heitar umræður milli þeirra og flugu högg þeirra á milli áður en aðrir farþegar stoppuðu þá.
Portúgal verður á 1. styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla fyrir undankeppni EM 2012 í dag.




