Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 07. febrúar 2010 10:04
Davíð Örn Atlason
Heimild: AP 
Martin Hansson fær að dæma á HM þrátt fyrir atvikið með Henry
Sænski dómarinn Martin Hansson mun dæma á Heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku í sumar þrátt fyrir stór mistök í leik Frakka og Íra í undankeppni HM.

Þá dæmdi hann mark Frakka í framlengingu gilt en Thierry Henry leikmaður Barcelona tók boltann augljóslega með höndinni áður en hann lagði boltann á William Gallas sem skoraði markið.

Hansson er einn af þrjátíu dómurum sem ferðast til Suður-Afríku þetta sumarið.

Norðmaðurinn Tom Henning Ovrebo fær ekki að dæma á mótinu en hann dæmdi frægan leik á milli Chelsea og Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á síðasta ári.

Svisslendingurinn Massimo Busacca verður að sjálfsögðu á meðal dómara en hann var kosinn besti dómari ársins 2009.
Slapp
banner