Reynir Sandgerði og Hvöt gerðu 3-3 jafntefli í hörkuleik í Sunnlenska bikarnum í fyrrakvöld en leikið var í Kórnum.
Í gær sigraði Árborg síðan Víði 2-0 en sá leikur fór einnig fram í Kórnum.
Í kvöld eru tveir leikir í mótinu en Höttur og Afturelding mætast klukkan 18:30 og Álftanes og Tindastóll eigast við klukkan 22:00.
Reynir 3 - 3 Hvöt
Markaskorarar Reynis: Davíð Örn Hallgrímsson 2, Benis Krasniqi.
Markaskorarar Hvatar: Benjamín Gunnlaugsson, Jón Kári Ívarsson og Hilmar Kárason.
Árborg 2 - 0 Víðir
Markaskorarar Árbogar: Guðmundur Garðar Sigfússon og Gunnar Óli Guðjónsson.



