Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 07. febrúar 2010 12:00
Hafliði Breiðfjörð
Cristiano Ronaldo - dýrasti og besti maður heims kemur til Íslands
Cristiano Ronaldo, dýrasti og besti knattspyrnumaður heims, mun koma til Íslands og spila á Laugardalsvelli í undankeppni EM 2012.

Þetta varð ljóst þegar dregið var í riðla fyrir undankeppni mótsins sem fer fram í Póllandi og Úkraínu árið 2012. Ekki er enn ljóst hvenær leikir Íslands í riðlinum fara fram en undankeppnin hefst næsta haust.

Portúgal var sterkasta liðið sem lenti í riði H sem Íslendingar verð í ásamt, Dönum, Norðmönnum og Kýpur.

Cristiano Ronaldo varð 25 ára í fyrradag. Hann spilar með Real Madrid á Spáni og er fyrirliði portúgalska landsliðsins.

Hann varð dýrasti knattspyrnumaður sögunnar þegar Real Madrid keypti hann frá Manchester United á 80 milljónir punda síðastliði sumar.

Þá er talið að samningur hans hjá Real Madrid geri hann að launahæsta knattspyrnumanni heims.

Síðustu ár hafa verið stórkostleg hjá þessum leikmanni sem varð Englandsmeistari, vann Meistaradeild Evrópu, besti leikmaður heims hjá FIFA, og vann Ballon d'Or verðlaunin sem besti leikmaður Evrópu.

Hann hefur spilað 68 leiki fyrir Portúgal og skorað í þeim 22 mörk. Á ferli sínum hefur hann leikið með Sporting Lisbon í heimalandi sínu, Portúgal, Manchester United frá 2003-2009 þar sem hann skoraði 84 mörk í 196 leikjum og svo með Real Madrid þar sem hann hefur skorað 9 mörk í 12 deildarleikjum á þessu tímabili. Þá hefur hann skorað 6 mörk í 4 leikjum í Meistaradeildinni með Real Madrid.
Slapp
banner
banner