Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 07. febrúar 2010 14:01
Magnús Már Einarsson
Helstu upplýsingar um liðin sem Ísland er með í riðli
Ísland og Danmörk mætast.
Ísland og Danmörk mætast.
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Ísland mun leika með Portúgal, Danmörku, Noregi og Kýpur í riðli í undankeppni EM 2012 en dregið var í riðla í morgun.

Undankeppnin hefst næsta haust en hér að neðan má sjá smá upplýsingar um liðin sem Ísland er að fara að mæta.


Portúgal:
Sæti á heimslista FIFA: 5
Þjálfari: Carlos Queiroz
Þekktir leikmenn: Cristiano Ronaldo, Ricardo Carvalho, Pepe, Jose Bosingwa, Joao Moutinho, Simao Sabrosa, Nani.
Gengi í undankeppni HM: Enduðu í öðru sæti í sínum riðli eftir mikla baráttu. Fóru í umspilsleiki gegn Bosníu-Herzegóvínu og komust þannig áfram á HM.

Danmörk:
Sæti á heimslista FIFA: 26
Þjálfari: Morten Olsen
Helstu leikmenn: Thomas Sörensen, Daniel Agger, Christian Poulsen, Jesper Gronkjær, Nicklas Bendtner, Jon Dahl Tomasson.
Gengi í undankeppni HM: Urðu efstir í riðli 1 og tryggðu sér þannig sæti á HM. Enduðu tveimur stigum á undan Portúgal og þremur stigum fyrir ofan Svía.

Noregur:
Sæti á heimslista FIFA: 32
Þjálfari: Egil Olsen
Þekktir leikmenn: Brede Hangeland, John Arne Riise, Morten Gamst Pedersen, John Carew, Steffen Iversen.
Gengi í undankeppni HM: Voru með Íslendingum í riðli og enduðu í öðru sæti með tíu stig. Norðmenn byrjuðu illa í undankeppninni en náðu sjö stigum í síðustu þremur leikjunum og enduðu í öðru sæti.

Kýpur:
Sæti á heimslista FIFA: 68
Þjálfari: Angelos Anastasiadis
Gengi í undankeppni HM: Kýpur er í mikilli sókn en liðið endaði í fjórða sæti í sínum riðli með níu stig. Voru á eftir Ítalíu, Írlandi og Búlgaríu en voru á undan Svartfellingum og Georgíu. Kýpverjar unnu Búlgaríu 4-1 í næstsíðasta leiknum í riðlinum og voru nálægt því að vinna Ítali í lokaleiknum þar sem þeir voru 2-0 yfir á 78.mínútu.
Slapp
banner
banner