,,Mér líst mjög vel á þetta, þetta er fínn riðill. Auðvitað hefði ég viljað vera í sex liða riðli og það er eina svekkelsið," sagði Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari Íslands þegar að Fótbolti.net náði tali af honum nú í hádeginu.
Ólafur er staddur í Varsjá í Póllandi þar sem að dregið var í riðla í undankeppni EM fyrr í dag en Ísland verður í riðli með Portúgal, Danmörku, Noregi og Kýpur.
,,Það er auðvelt að ferðast á þessa staði og við þekkjum fótboltann vel bæði í Noregi og Danmörku. Okkur gekk ágætlega með Norðmennina í undankeppni HM og við vitum allt um þessar þjóðir."
Íslendingar bíða væntanlega spenntastir eftir að fá að mæta Portúgal en innan þeirra raða er meðal annars Cristiano Ronaldo.
,,Portúgal er frábær fótboltaþjóð og þeir eiga marga frábæra fótboltamenn. Þar á meðal er sá sem er talinn vera besti fótboltamaður í heimi og það verður gaman að geta boðið Íslendingum að sjá hann „live" á Laugardalsvelli."
Portúgal endaði í öðru sæti í undankeppni HM síðastliðið haust en Danir voru í fyrsta sæti í þeim riðli.
,,Það kæmi mér ekkert á óvart þó að Danirnir séu betri en Portúgalarnir. Danirnir eru með frábært lið og þeir eru sennilega besta fótboltaþjóðin á Norðurlöndunum. Fyrsti leikurinn þegar að ég var með liðið var á móti Dönum og það verður ágætt að rifja það upp."
Liðið sem Ísland ætti að eiga mesta möguleika gegn í riðlinum er lið Kýpur sem er í 68.sæti á heimslista FIFA.
,,Við eigum að spila æfingaleik við þá í mars. Ég veit ekki mikið um þeirra fótbolta en þeir hafa verið á mikilli uppleið," sagði Ólafur um Kýpverja.



