Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englendinga, hafði vonast til að mæta Íslendingum í undankeppni EM en dregið var í riðla fyrr í dag.
Margir Íslendingar vildu einnig lenda með Englendingum í riðli og litlu munaði að svo færi en Englendingar enduðu í G-riðli á meðan að Ísland fór í H-riðil með Portúgal, Danmörku, Noregi og Kýpur.
Þegar að dregið var í dag voru England, Portúgal og Spánn eftir þegar að átti eftir að draga í þrjá síðustu riðlana. Ólafur Jóhannesson segist hafa vonast til að fá Englendinga á þeim tímapunkti.
,,Að sjálfsögðu vorum við mjög spenntir fyrir því. Við vildum fá England og það sem meira er þá vildu þeir líka fá okkur," sagði Ólafur sem spjallaði við Capello í gær.
,,Við spjölluðum við þá í gær og hann (Capello) sagði okkur að hann myndi vilja fá Ísland."


