Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 07. febrúar 2010 13:52
Gunnar Gunnarsson
Heimild: Soccernet 
Stuðningsmaður Blackburn lést á spítala eftir leik gegn Stoke
Þrítugur stuðningsmaður Blackburn sem fannst særður á leik liðsins gegn Stoke City í viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni í gær lést á spítala samkvæmt tilkynningu frá lögregluyfirvöldum á Englandi í dag.

Þessi tiltekni stuðningsmaður fannst meðvitundarlaus hjá veitingasölunni undir stúkunni á Britannia-vellinum í Stoke er heimamenn öttu kappi við Blackburn Rovers.

Hann var meðhöndlaður á staðnum vegna alvarlegra höfuðáverka en hjarta mannsins var hætt að slá. Maðurinn var fluttur með hraði á nærliggjandi sjúkrahús en lögregluyfirvöld tilkynntu í dag að hann hafi látist um klukkan 2 í nótt.

Talsmaður lögreglunnar sagði: ,,Hinn þrítugi stuðningsmaður Blackburn var útskurðaður látinn um 1:55. Rannsókn á vettvangi er í fullum gangi en 25 ára gamall maður er í gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn lögreglunnar á málinu."

Hinn látni fannst í suðurenda vallarins rétt í upphafi seinni hálfleiks þar sem um 1300 manna hópur stuðningsmanna Blackburn var staðsettur en engir stuðningsmenn Stoke voru á sama svæði.
Slapp
banner
banner