Heimild: Aftenbladet
Ola By Rise, aðstoðarþjálfari Noregs, varð ekki að ósk sinni þegar dregið var í riðla í undankeppni EM2012 í dag en hann vildi fyrir alla muni forðast að mæta Íslendingum sem gerðu Norðmönnum tvisvar skráveifu í síðustu undankeppni.
Þjóðirnar drógust saman í riðil ásamt Portúgal, Danmörku og Kýpur og býst Rise við jöfnum riðli.
,,Það var ekki hagstætt að fá Ísland sem mótherja og heldur ekki að við höfnuðum í fimm liða riðli,” sagði Rise í samtali við norska fjölmiðla eftir dráttinn.
,,Ég held að þetta verði jafn riðill og það er ekki útilokað að við getum keppt við Danmörku og Portúgal um efsta sætið.”



