Heimild: Politiken
Landsliðsþjálfari Dana telur auk þess að Rúrik Gíslason hafi styrkt íslenska landsliðið
Morten Olsen, landsliðsþjálfari Danmerkur, telur Íslenska landsliðið hafa styrkst með tilkomu leikmanna á borð við Rúrik Gíslason sem hefur slegið í gegn með OB í dönsku úrvalsdeildinni á þessu keppnistímabili.
Hann vill ennfremur gjarnan byrja undankeppni EM með útileik gegn Íslandi þar sem hann hefur tvisvar áður stýrt Dönum gegn Íslendingum í fyrsta leik í undankeppni stórmóts á klakanum, og í bæði skiptin hafa lærisveinar hans farið með sigur af hólmi, 2000 og 2004.
,,Við höfum góða reynslu af því að byrja á Íslandi,” sagði Olsen í samtali við danska fjölmiðla í dag en gat þess jafnframt að það væri vitaskuld ekki einvörðungu í höndum Dana að ákvarða uppröðun leikjanna.
,,Við höfum haft gott tak á Íslendingum en það hefur átt sér stað ákveðin endurnýjum hjá þeim með tilkomu nýs þjálfara og nýrra, góðra leikmanna sem hafa komið upp úr U-21 árs liðinu, eins og Rúrik Gíslason.”
Olsen leggur á það áherslu að leikirnir á Íslandi hafi ekki verið auðveldir en það hafi skynið í gegn hjá leikmönnunum hversu einbeittir þeir hafi verið í Reykjavík og náð að skora á mikilvægum augnablikum í leikjunum.




