Fjölnir 0-1 Fylkir:
0-1 Pape Mamadou Faye ('85)
Fylkir er komið í undanúrslit Reykjavíkurmótsins eftir 0-1 sigur á Fjölni í Egilshöll í kvöld en Pape Mamadou Faye skoraði sigurmarkið í lokin.
0-1 Pape Mamadou Faye ('85)
Fylkir er komið í undanúrslit Reykjavíkurmótsins eftir 0-1 sigur á Fjölni í Egilshöll í kvöld en Pape Mamadou Faye skoraði sigurmarkið í lokin.
Leikurinn var frekar daufur á að horfa en Fjölnismenn komust tvívegis nærri því að skora er þeir skutu í stöngina úr góðu færi.
Sigur hefði dugað Fjölni til að komast í undanúrslitin en þeim brást bogalistin í þessum tveimur færum og sigurmarkið kom svo hinum megin á vellinum.
Varamaðurinn Friðrik Ingi Þráinsson sendi þá fyrir markið af vinstri kanti og inn í teig þar sem Pape skallaði á fjærstöngina og tryggði Fylki 0-1 sigur á 85. mínútu.
Það eru því Fykir og Fram sem fara upp úr riðlinum í undanúrslitin en enn er ekki ljóst hvaða lið mæta þeim þar.
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet



