Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 08. febrúar 2010 11:03
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Kevin Davies telur að Mark Clattenburg hafi eitthvað á móti sér
Kevin Davies, fyrirliði Bolton, hefur lýst yfir óánægju sinni með dómarann Mark Clattenburg.

Davies skoraði með skalla undir lok leiks gegn Fulham um helgina en Clattenburg dæmdi markið af þar sem að hann taldi að framherjinn hefði brotið á Brede Hangeland.

Leikmenn Bolton og Owen Coyle stjóri liðsins voru æfir yfir ákvörðuninni enda hefði markið verið sigurmark í leiknum sem endaði með markalausu jafntefli.

,,Alltaf þegar að hann dæmir hjá okkur þá býst ég við engu frá honum," sagði Davies.

,,Ég held að hann (Hangeland) hafi farið undir boltann og ég stökk bara hærra en hann. Hann datt í jörðina og vissi að þetta var löglegt mark."

,,Þegar að ég sá dómarann þá vissi ég að við mættum ekki búast við neinu frá honum. Mér finnst alltaf eins og það sé eitthvað persónulegt á milli okkar."

Slapp
banner
banner