Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mán 22. febrúar 2010 21:30
Magnús Már Einarsson
Lengjubikarinn: ÍA hafði betur gegn Njarðvík
Ragnar skoraði þriðja mark Skagamanna.
Ragnar skoraði þriðja mark Skagamanna.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
ÍA 3 - 1 Njarðvík
1-0 Arnar Már Guðjónsson
2-0 Fannar Freyr Gíslason
2-1 Árni Ármannsson
3-1 Ragnar Leósson
Rautt spjald: Andri Júlíusson

ÍA sigraði Njarðvík 3-1 í Lengjubikar karla í Akraneshöllinni í kvöld en öll mörk leiksins komu í fyrri hálfleiknum.

Skagamenn komust yfir snemma leiks þegar að Arnar Már Guðjónsson skoraði. Eftir fyrirgjöf frá hægri átti Fannar Freyr Gíslason skot í stöng en Arnar Már fylgdi á eftir og skoraði með skoti upp í þaknetið.

Fannar Freyr komst sjálfur á blað skömmu síðar en hann fékk þá sendingu inn á teig, snéri sér við og skoraði með fallegu skoti í fjærhornið.

Njarðvíkingar lögðu ekki árar í bát og þeir náðu að minnka muninn þegar að Árni Ármannsson skoraði með skoti fyrir utan vítateig.

Á lokamínútu fyrri hálfleiks náðu Skagamenn síðan aftur tveggja marka forystu. Brotið var á Andra Júlíussyni og dæmd var vítaspyrna sem Ragnar Leósson skoraði úr.

Í síðari hálfleik bar það helst til tíðinda að Andri fékk að líta rauða spjaldið fyrir tveggja fóta tæklingu þegar um tuttugu mínútur voru eftir. Mörkin urðu hins vegar ekki fleiri og lokatölur 3-1 fyrir Skagamenn.
Slapp
banner
banner