Heimild: Sky
Martin Skrtel miðvörður Liverpool verður frá næstu átta vikurnar eftir að hann braut hið fræga metatarsal bein eins og við greindum frá fyrir helgi.
Liverpool staðfesti í gær að þessi grjótharði miðvörður yrði frá næstu átta vikurnar.
Skrtel meiddist í 3-1 sigri liðsins Unirea Urziceni í Evrópudeildinni.
Skrtel fór í myndatökur eftir leik sem staðfestu brotið en nú er ljóst að Liverpool nýtur ekki krafta hans næstu tvo mánuðina.
Daniel Agger annar miðvörður Liverpool meiddist í sigri liðsins á Blackburn um helgina og er hann í endurhæfingu en vonast er til að hann verði klár næstu helgi.