Heimild: Sporting Life
Arsene Wenger stjóri Arsenal vill mæta ensku liði í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Arsenal vann Porto 5-0 í gær í síðari leik liðanna og samanlagt 6-2.
,,Ég ef skondna tilfinningu um að við gætum jafnvel mætt ensku liði," sagði Wenger.
,,Við höfum ekki gert vel gegn Chelsea og ekki gert vel gegn Manchester United á þessu ári og það væri kannski gott tækifæri fyrir okkur að sýna hvað við getum gert."
Arsenal hefur tapað báðum leikjunum gegn báðum þessum liðum í ensku deildinni á þessari leiktíð.


