Heimild: Sky
Enska knattspyrnusambandið hefur staðfest að Steven Gerrard mun ekki fá refsingu fyrir að sýna Andre Marriner dómara ,,V-merki" í tapi liðsins gegn Wigan í fyrrakvöld.
Gerrard fékk að líta gula spjaldið á 81.mínútu og í kjölfarið virtist hann lyfta upp tveimur puttum og gera ,,V-merki" en það þykir vera niðrandi á Englandi.
Rafa Benitez, stjóri Liverpool, kom Gerrard til varnar í dag og nú er ljóst að leikmaðurinn mun ekki fá refsingu frá enska knattspyrnusambandinu.
Talið er að Marriner hafi séð atvikið í leiknum en ekki talið það verðskulda refsingu og því getur enska knattspyrnusambandið ekkert aðhafst.

