Heimild: Setanta
Talið er að forráðamenn ítalska félagsins Roma séu mættir til London til að ræða við William Gallas varnarmann Arsenal.
Gallas verður samningslaus í sumar og getur því farið frítt frá Arsenal ef að hann vill.
Gallas ku ekki vera spenntur fyrir nýjum tveggja ára samningi sem Arsenal hefur boðið á honum en talið er að hann þurfi að taka á sig launalækkun ef að hann samþykkir þann samning.
Franski varnarmaðurinn gæti því farið til Roma þar sem að Claudio Ranieri er við stjórnvölinn en þeir voru á sama tíma hjá Chelsea.
,,Ég keypti hann þegar að ég stýrði Chelsea og hann hefur staðið sig vel með þeim og Arsenal. Hann er topp leikmaður og allir topp leikmenn eru velkomnir til Roma," sagði Ranieri.

