Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 10. mars 2010 16:46
Hörður Snævar Jónsson
Íslenskir krakkar leiða leikmenn út á Old Trafford í kvöld
Rakel og Viktor með forráðamönnum sínum þegar tilkynnt var að þau hefðu dottið í lukkupottinn.
Rakel og Viktor með forráðamönnum sínum þegar tilkynnt var að þau hefðu dottið í lukkupottinn.
Mynd: Aðsend
:  Rakel og Viktor eru búin að undirbúa sig vel og munu ganga einbeitt inn á Old Trafford í kvöld.
: Rakel og Viktor eru búin að undirbúa sig vel og munu ganga einbeitt inn á Old Trafford í kvöld.
Mynd: Aðsend
Í kvöld fer fram síðari leikur Manchester United og AC Milan í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar í knattspyrnu á Old Trafford í Manchester. Á annað hundrað Íslendingar eru mættir til Manchester til að fylgjast með leiknum, en íslenski Manchester-klúbburinn efndi til sérstakrar hópferðar á völlinn.

Leikurinn þykir sögulegur því að þetta er í fyrsta sinn sem að David Beckham snýr aftur á sinni gamla heimavöll og etur kappi við félagið þar sem hann ólst upp.

En leikurinn markar fleiri tímamót því í kvöld munu íslensk börn í fyrsta skipti vera í hópi þeirra barna sem leiða liðin inn á völlinn í Meistaradeildinni. Rakel Marín Konráðsdóttir og Viktor Blær Hafþórsson eru 7 ára gömul og voru valin úr hópi á annað þúsund íslenskra barna sem sóttu um í sérstöku forvali Kreditkorts hf, en fyrirtækið er í samstarfi við Mastercard sem er einn af styrktaraðilum Meistaradeildarinnar.

Krakkarnir leggja bæði stund á íþróttir. Rakel æfir fótbolta hjá Stjörnunni og Viktor æfir með knattspyrnudeild ÍR. Þau eru í fylgd forráðamanna sinna í Manchester, en vegna mikilla öryggisráðstafanna munu foreldrarnir aðeins geta fylgt þeim að því svæði þar sem búningsklefarnir eru. Þar munu þau hitta fyrir börn frá ýmsum löndum Evrópu og í ljós kemur hvaða fótboltastjarna leiðir þau inn á völlinn fyrir framan ríflega 60.000 áhorfendur og tugmilljónir sjónvarpsáhorfenda.

Eftirvæntingin hjá krökkunum mun vera orðin mjög mikil. Rakel hefur sagst vilja leiða Wayne Rooney, en hann er uppáhaldsleikmaðurinn hennar hjá Manchester United. Viktor hefur hingað til haldið með Arsenal. Afi hans hefur þó lengi reynt að fá hann til að skipta yfir í Manchester United. Væntanlega mun sú upplifun að fylgja þessu sögufræga fótboltaliði inn á völlinn í svo mikilvægum leik hafa einhver áhrif á það hvaða liði Viktor ákveður að halda með í framtíðinni.
Slapp