Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 11. mars 2010 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: 245.is 
Dagmar Þráinsdóttir er íþróttamaður Sandgerðis 2009
Kvenaboltinn
Dagmar með viðurkenningar sínar.
Dagmar með viðurkenningar sínar.
Mynd: 245.is
Dagmar Þráinsdóttir var kjörin Íþróttamaður ársins 2009. Athöfnin fór fram í Vörðunni síðastliðinn föstudag og bárust 5 tilnefningar frá Golfklúbbi Sandgerðis, Íþróttaráði Sandgerðisbæjar, Knattspyrnudeild Reynis, Körfuknattleiksdeild Reynis og Sunddeild Reynis.

Umsögn um Dagmar frá íþróttaráði Sandgerðis af vefnum 245.is:
Dagmar Þráinsdóttir hefur stundað knattspyrnu frá unga aldri. Hún lék fyrst með yngri flokkum Ksf. Reynis og síðan með meistaraflokki GRV. Hún lék sinn fyrsta leik með meistaraflokki GRV í 1. deild árið 2005.

Hún átti þátt í að liðið komst upp í efstu deild árið 2008. Dagmar lék í nánast öllum leikjum liðsins í Pepsi-deildinni á árinu 2009.

Liðið náði þá þeim glæsilega árangri að tryggja sér setu í efstu deild með því að enda í sjöunda sæti í deildinni. Það er besti árangur sem meistaraflokkur á vegum Knattspyrnufélagsins Reynis hefur náð í deildarkeppni.

Dagmar lék sinn fyrsta landsleik fyrir Ísland á árinu 2009. Þá var hún í byrjunarliði í U-19 liði Íslands gegn Færeyjum í Þorlákshöfn í júlí.
Hún hefur verið að æfa með U-19 liði Íslands í vetur ásamt því að æfa með meistaraflokki Grindavíkur, þar sem samstarfinu um GRV hefur verið slitið. Það sýnir einbeitni hennar að hún lætur sig ekki muna um að sækja æfingar um langan veg.

Dagmar er sönn íþróttakona sem lætur ekki mótlæti hindra sig í að ná markmiðum sínum. Hún er þrautseig og öguð keppnismanneskja, en um leið góður félagi í sínum hóp. Dagmar er prúð og yfirveguð innan vallar sem utan og er því verðug fyrirmynd ungra íþróttamanna.

Íþróttaráð Sandgerðisbæjar
Slapp
banner
banner
banner