Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 11. mars 2010 09:00
Hafliði Breiðfjörð
Sjúkraþjálfarahornið: Nárameiðsli
Trausti Már Valgeirsson sjúkraþjálfari svarar á mánudagsmorgnum fyrirspurnum lesenda um algeng meiðsli í fótboltanum og útskýrir málið hér á Fótbolta.net. Trausti svarar í dag nýrri fyrirspurn.

Öllum er frjálst að senda Trausta fyrirspurnir og á hverjum mánudegi svarar hann einni slíkri. Sendið fyrirspurnir á netfangið: [email protected].

TRAUSTI MÁR VALGEIRSSON
Trausti Már útskrifaðist úr Læknadeild Háskóla Íslands með B.sc. gráðu í sjúkraþjálfun árið 2008. Hann vinnur í dag sem sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari hjá Sjúkraþjálfuninni Ártúnshöfða og hjá Hreyfingu heilsulind. Hann hefur unnið mikð með íþróttafólki úr ýmsum greinum eins og til dæmis fótbolta, mótorcrossi, taekwondo og fleira
Nárameiðsli

Spurning:
Lagast nárameiðsl ekki með hvíd? Er búinn að glíma við þau núna í 4 ár og alltaf að meiðast aftur. Hef núna ekki æft í 5 mánuði og hef ekkert skánað.

Svar:
Komdu sæll,

Nárameiðsli, það er yfirleitt tognun í vöðva, þá á vöðvasina mótunum en einnig getur komið rof í festuna alveg upp í nára. Þetta getur komið við skyndilegt álag eða langvarandi ofálag á sinina. Síðan getur einnig farið eftir því hvort það blæðir inn í vöðvann eða ekki, það getur haft einhver áhrif á endurhæfinguna, meðferð hjá sjúkraþjálfara getur tekið allt frá 3 vikum upp í 12 vikur, í einstaka tilvikum lengri tíma og byggir á því að minnka bólgur, kenna styrktar og liðleikaæfingar fyrir nárann.

Þar sem tognunin verður myndast örvefur og það tekur alltaf tíma fyrir örvefinn að aðlagast álaginu og því er alltaf hætta á að svona tognanir endurtaki sig aftur og aftur. Þegar ástandið er orðið þannig að einstaklingurinn er stöðugt með verki og bólgu í nárafestunni, þá geta einstaklingar stundum þruft að fara í aðgerð þar sem festan er losuð og færð aðeins neðar til þess að létta á álaginu á sininni.

Kv.Trausti Már.
Slapp
banner
banner
banner
banner