Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 10. mars 2010 21:40
Magnús Már Einarsson
Meistaradeildin: Mark frá Pjanic sló Real Madrid út
Real Madrid 1 - 1 Lyon (Samanlagt 1-2)
1-0 Cristiano Ronaldo ('5)
1-1 Miralem Pjanic ('76)

Spænska stórveldið Real Madrid er úr leik í Meistaradeildinni eftir 1-1 jafntefli gegn Lyon á Santiago Bernabeu í kvöld.

Lyon sigraði fyrri leikinn 1-0 og fer því áfram samanlagt 2-1 en það var Miralem Pjanic sem skoraði jöfnunarmarkið mikilvæga í kvöld.

Real Madrid hefur aldrei náð að vinna leik gegn Lyon í Meistaradeildinni en liðið byrjaði vel í kvöld og komst yfir strax á fimmtu mínútu þegar að Cristiano Ronaldo skoraði. Portúgalinn er markahæsti leikmaður Meistaradeildarinnar í vetur en hann náði að skora með skoti sem fór á milli fóta Hugo Lloris.

Gonzalo Higuain fékk tvö góð færi fyrir leikhlé en hann náði ekki að koma Real Madrid í 2-0.

Í síðari hálfleik komu leikmenn Lyon grimmir til leiks og þeir uppskáru á 76.mínútu þegar að boltinn féll fyrir fætur Miralem Pjanic sem skoraði framhjá Iker Casillas.

Eftir þetta settu heimamenn allt púður í sóknina enda hefðu þeir þurft að ná að skora tvö mörk til að komast áfram. Þeim tókst aftur á móti ekki að skora og lokatölurnar urðu 1-1 og samanlagt 2-1 fyrir Lyon.

Úrslitin eru gríðarleg vonbrigði fyrir Real Madrid sem að eyddi ótrúlegum fjárhæðum í leikmenn síðastliðið sumar og keyptu menn eins og Cristiano Ronaldo og Kaka.

Liðið er núna úr leik í Meistaradeildinni sem og spænska bikarnum en Madridingar eiga þó ennþá möguleika á að vinna spænsku deildina.
Slapp
banner
banner
banner