Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 11. mars 2010 06:00
Magnús Már Einarsson
Bjarni Pálma, Frans Veigar og Jón Trausti í Hvöt (Staðfest)
Bjarni Pálmason er farinn aftur í Hvöt.
Bjarni Pálmason er farinn aftur í Hvöt.
Mynd: Fótbolti.net - Steinar Ægisson
Hvöt hefur fengið Bjarna Pálmason, Jón Trausta Guðmundsson og Frans Veigar Garðarsson til liðs við sig.

Bjarni hefur skorað grimmt í æfingaleikjum með Hvöt að undanförnu en hann kemur til félagsins frá KA.

Bjarni skoraði fjögur mörk með KA síðastliðið sumar en hann þekkir til hjá Hvöt eftir að hann lék með liðinu í annarri deildinni árið 2008.

Jón Trausti er tvítugur framherji en hann kemur í Hvöt frá Breiðablik þar sem að hann var í öðrum flokki í fyrra.

Frans er 21 árs gamall varnar og miðjumaður sem kemur frá Magna þar sem að hann skoraði tvö mörk í 19 leikjum í annarri deildinni í fyrra.
Slapp
banner
banner