Heimild: BBC
Ummæli vikunnar hafa verið í fríi á Fótbolta.net að undanförnu en nokkur skemmtileg ummæli litu dagsins ljós í þessari viku og það er ekki úr vegi að kíkja á nokkrar skemmtilegar setningar.
Ef þið lesendur góðir hafið góð ummæli megið þið endilega senda tölvupóst á [email protected]
,,Boaz Myhill sá boltann aldrei, ekki fyrr en í endursýningunni."
Guðmundur Benediktsson eftir að Landon Donovan skoraði fjórða mark Everton í 5-1 sigri liðsins á Hull.
,,Hann langar helst að fá skóflu og grafa sig niður."
Guðmundur Benediktsson eftir að Sam Vokes leikmaður Wolves klúðraði dauðafæri á lokamínútunum gegn Manchester United.
,,Það eru frábærir breskir stjórar í Championship deildinni en það þarf einhver að gefa þeim séns. Stórt félag mun alltaf leita að stóru nafni, kynþokkafullu nafni. Þú verður að spyrja konuna mína hvort ég sé kynþokkafullur - hún segir pottþétt nei."
Harry Redknapp, stjóri Tottenham talar um fækkun knattspyrnustjóra frá Englandi.
,,Það eina sem leikmenn hugsa er að fá borgað í hverjum mánuði svo það skiptir ekki máli hvort að David Gold eða Andrés önd á félagið."
Mark Lawrenson, sparkspekingur hjá BBC, talar um West Ham.
,,Hans-Jörg Butt var eins og gámaskip á leiðinni í hornið."
Guðmundur Benediktsson um Hans-Jörg Butt markvörð Bayern Munchen í leik gegn Fiorentina.
,,Ég bið eldri borgara að slökkva á tækjunum svo þeir fái ekki fyrir hjartað hér."
Guðmundur Benediktsson aftur á ferð í leik Bayern og Fiorentina.
,,Ég var bara í einhverju rugli þarna og vissi ekkert hvað ég ætti að gera við boltann svo ég lét bara vaða."
Halldór Smári Sigurðsson leikmaður Víkings um stórglæsgilegt mark sitt gegn KR í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins þar sem að hann skoraði af um 40 metra færi.
,,Við ætlum að styrkja okkur aðeins meira. En við leyfum rebbunum á toppnum að taka allt sem hreyfist, svo sjáum við hvað verður eftir."
Bjarni Jóhannsson þjálfari Stjörnunnar talar um leikmannamál liðsins á Vísi.is.
,,Við lékum mjög góðan fótbolta og að skora sex mörk var frábært. Voru þetta fimm eða sex mörk? Einn af útvarpsmönnunum sagði 5-1 í spurningu sem að hann spurði mig og ég var að íhuga að leiðrétta hann. Voru þetta fimm mörk? Ó, ég er glaður að ég sagði ekkert við hann þá."
David Moyes, stjóri Everton, vissi ekki hvort liðið hefði skorað fimm eða sex mörk gegn Hull City.



