Tveir leikir fara fram hér á landi í kvöld en um er að ræða leiki í A deildinni í Lengjubikar karla.
Valur og Fram mætast í Reykjavíkurslag í Egilshöll klukkan 19:10.
Strax að þeim leik loknum mætast Víkingur R. og Fjölnir í öðrum Reykjavíkurslag en sá leikur er einnig í Egilshöllinni.
Lengjubikar karla - A deild:
19:10 Valur - Fram (Egilshöll)
21:00 Víkingur R. - Fjölnir (Egilshöll)
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet


