Heimild: Sporting Life
Yossi Benayoun verður ekki með Liverpool þegar að liðið mætir Lille í Evrópudeildinni í kvöld.
Benayoun meiddist á ökkla gegn Wigan á mánudag og ferðaðist ekki með Liverpool til Frakklands.
Daniel Agger kom ekki við sögu gegn Wigan en hann ætti að geta leikið að nýju á morgun eftir að hafa jafnað sig af flensu.
Leikmannahópur Liverpool: Reina, Johnson, Degen, Agger, Carragher, Kyrgiakos, Insua, Gerrard, Lucas, Aquilani, Riera, Ngog, Kuyt, Torres, Cavalieri, Pacheco, Spearing, Darby, Babel, Kelly.


