Heimild: BBC
85 einstaklingar hafa misst starf sitt hjá Portsmouth í kjölfarið á fjárhagsvandræðum félagsins.
Andrew Andronikou, skiptastjóri, hefur verið að taka til hjá félaginu til að laga fjárhaginn og hann hefur núna ákveðið að losa sig við 85 starfsmenn.
Engir leikmenn hafa verið látnir fara en einn eða tveir leikmenn munu taka á sig launalækkun.
Áður en að Andronikou tók ákvörðun um að reka starfsmenn þá var Portsmouth með 166 einstaklinga í fullu starfi og 154 í hlutastarfi.



