Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 11. mars 2010 07:00
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Soccernet 
Guti: Hefðum átt að spila meira sem lið heldur en einstaklingar
Guti leikmaður Real Madrid telur að liðið hefði átt að spila meira sem lið heldur en einstaklingar gegn Lyon í gær.

Real Madrid er úr leik eftir að hafa gert 1-1 jafntefli á Bernabeu í gær og tapað fyrri leiknum 1-0.

,,Þetta er mikill skömm," sagði Guti. ,,Við sýndum það enn og aftur að í stórleikjunum getum við ekki drepið leikinn."

Real hefur ekki komist lengra en 16 liða úrslit síðan 2004.

,,Við hefðum átt að spila meira sem lið heldur en sem einstaklingar. Í síðari hálfleik þá spiluðum við ekki eins og við eigum að gera."
Slapp
banner
banner