Tveir leikir fóru fram í Meistaradeild Evrópu í gær. Manchester United og Lyon tryggðu sér áframhaldandi veru í keppnini og eru bæði lið komin í átta liða úrslit. United lagði AC Milan með fjórum mörkum gegn engu en Lyon gerði 1-1 jafntefli við Real Madrid ytra. Það dugði Frökkunum þar sem að þeir unnu fyrri leikinn 1-0. Ljósmyndarar NordicPhotos voru mættir á báða leikina og hér að neðan má sjá afraksturinn. David Beckham, leikmaður AC Milan er mjög áberandi, en hann var að spila á Old Trafford í fyrsta skipti síðan að hann fór frá United árið 2003.
Manchester United - AC Milan
Real Madrid - Lyon

