Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 11. mars 2010 09:21
Davíð Örn Atlason
Heimild: Sporting Life 
Sir Alex Ferguson: Rooney var stórkostlegur
Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United, var virkilega ánægður með 4-0 sigur liðsins á AC Milan í Meistaradeild Evrópu í gær og hrósaði sérstaklega Wayne Rooney sem skoraði tvö mörk.

Seinna mark Rooney var hans þrítugasta á leiktíðinni og það er spurning hvort hann nái Cristiano Ronaldi í markaskorun, en Ronaldo skoraði 42 mörk á þar síðasta tímabili.

,,Það er mikil áskorun," sagði Ferguson við ITV eftir leikinn gegn Milan í gærkvöldi.

,,Ef að ég á að vera hreinskilinn, þá var ég ánægður með að hann hafi náð 30 mörkum."

,,En hann heldur bara áfram að bæta sig og í kvöld var hann stórkostlegur,"
bætti Ferguson við.

,,Við vorum glæsilegir í síðari hálfleiknum. Við spiluðum mjög, mjög vel."

,,Þegar að við spilum á þessu tempói, þá er mjög erfitt að spila gegn okkur og þetta var virkilega góð frammistaða."


Ferguson segist ekki hafa neina óskamótherja í átta liða úrslitum: ,,Það skiptir ekki máli hvaða liði þú mætir þegar að þú hefur eins lið og ég í höndunum," sagði Ferguson að lokum.
Slapp
banner