,,Við vorum að fá okkur Weimaraner hvolp sem er 3 mánaða, hann heitir Emil Garpur og fer með okkur í göngutúra um borgina og nágrenni. Hann er ómótstæðilega sætur og á eftir að verða mikill fótbolta- og veiðihundur.''
,,Erum samt að æfa og spila í nike, það mætti breytast í adidas þá væri þetta hin fullkomna aðstaða og útbúnaður.''
,,Við búum mjög miðsvæðis í Örebro og hjólum eða löbbum út um allt (5 mín í miðbæinn), búum ekki svo vel að eiga bíl, því miður, skemmtilegt að hjóla í matvörubúðina''
Þá er komið að vikulega liðnum ,,Atvinnumaðurinn." Þar er tekið viðtal við íslenskan fótboltamann sem er í atvinnumennskunni.
Í dag er komið að því að kynnast lífinu hjá Eddu Garðarsdóttur landsliðskonu Íslands sem leikur með KIF Örebro í Svíþjóð.
Í dag er komið að því að kynnast lífinu hjá Eddu Garðarsdóttur landsliðskonu Íslands sem leikur með KIF Örebro í Svíþjóð.
Hvernig er aðstaðan hjá félaginu?
Aðstaðan hjá KIF Örebro er öll til fyrirmyndar. Við erum með glæsilegan gervigrasvöll sem heitir Behrn Arena sem er sígrænn allt árið og á leikvanginum erum við með okkar eigið athvarf, allan útbúnað og starfsfólkið hefur einnig fína aðstöðu. Erum samt að æfa og spila í nike, það mætti breytast í adidas þá væri þetta hin fullkomna aðstaða og útbúnaður.
Í vetur hefur mikið snjóað í Svíþjóð en völlurinn er alltaf ruddur og fínn þegar við förum á hann, það tengist því kannski ögn að karlaliðið ÖSK æfir á honum á undan okkur á daginn, en þeir eru í efstu deild - Arnór Guðjohnsen er heimsfrægur hér í Örebro en hann spilaði hér í gamla daga. Eina sem mætti kannski setja út á að lyftingarsalurinn okkar er frekar lúinn hefur líklega staðið óbreyttur síðan 1975, en þeir stæra sig enn af því þegar heimsmetið í bekkpressu var slegið 1979 í húsakynnum ÖKK (svipað því að hafa alltaf plagg upp á vegg á sölustöðum Lottó um að þar hafi rokið út 5 tölur réttar 1998). Lóðin virka samt sem áður og það er sko rifið í þau án afláts.
Finnur þú fyrir miklum áhuga hjá stuðningsmönnum liðsins?
Já, við getum sagt að það sé fámennt en góðmennt í stúkunni. Aðalstuðningsmenn okkar mæta á alla leiki í sama hvaða veðri sem er. Hér er svo mikið um að vera í íþróttalífinu að hinn almenni borgari borgar sig bara inn til að sjá "alvöru leiki" þá erum við að tala um þegar stórliðin mæta hingað, td. Ldb Malmö til að sjá Dóru Stefáns og Þóru, Umeå af því að þær eru margfaldir meistarar í gegnum árin, Djurgården til að sjá Guðrúnu Sóleyju Gunnars og Guðbjörgu Gunnars, og svo auðvitað Kristianstad þegar Margrét Lára, Erla Steina og Guðný Björk mæta á svæðið með sitt lið.
Hvernig er venjulegur æfingadagur hjá þér?
Morgunæfing á Behrn Arena 07.00 - 08.30, svo gymmið ÖKK 8.45/9.00 - 10.00 (eða annaðhvort, fer eftir því hvað er í boði þann daginn - morgunæfingar eru í boði 3 í viku, stundum oftar, stundum sjaldnar, fer eftir leikjaálagi).
Æfing með liðinu 16.00 - 18.30 á Behrn Arena.
Ef það er frí hjá liðinu þá er það bara gymmið í æfingarnar mínar í 90 mín, fer ekki alltaf á sama tíma þar sem ég er byrjuð í skóla með þessu öllu saman.
Hvernig er venjulegur leikdagur hjá þér?
Byrja alltaf daginn áður að undirbúa mig fyrir leiki, þá líkamlega og andlega. Líkamlega - passa ég upp á það að taka sem best á því á æfingunni fyrir, vera nógu heit allan tímann (oft er taktík og mikið staðið á æfingunni sjálfri... ) þá þarf ég að passa mig að skokka niður og teygja vel daginn fyrir leik. Andlega - renni yfir það hvað það er sem ég þarf að gera í leiknum, hvert hlutverk mitt verður í taktík liðsins, hvernig er líklegt að hitt liðið spili og hvað ég ætla að gera til að loka á styrkleika þeirra, hverjum ég er að fara að mæta á miðjunni (ekki alltaf samt) og fleira. Skrifa svo alltaf niður á blað áður en ég fer að sofa áherslur mínar og renni yfir það í huganum hvað ég á eftir að gera í leiknum, alltaf jákvætt.
Vakna alltaf um 07.00 (aldurinn) hafragrauturinn ómissandi, les blaðið með daglega kaffibollanum/vatninu.
Renni fyrir listann minn og hlutverk mitt í huganum.
Skóli eða hvað sem er að gerast, ef þá e-ð sem þarf að afgreiða yfir daginn. Þetta er lúxus, tek þessu ekki sem sjálfsögðum hlut að vera ekki að vinna 8-X tíma á dag. Þakka fyrir það.
Lunch með Ólínu eða liðinu, fer eftir því hvar leikurinn er.
Pússa adidas predatorana mína og strýk þeim svo að þeir haldi mér á tánum.
Netrúntur, lærdómur, lestur og afslöppun, hlakka alltaf svo mikið til og er svo spennt fyrir því að spila að ég sef aldrei. ALDREI !
Listinn minn, þegar ég hlusta á playlistann minn, með ísköldu vatni og banana.
Mæti í leik. Upphitun og ræða. Vinnum leikinn. Niðurskokk og teygjur, þá eru ýmis atriði rædd, svíar eru mikiði fyrir að greina allt í ræmur.
Hollur matur eftir leik.
Hvernig býrðu þarna úti?
Ég bý með Ólínu Guðbjörgu Viðarsdóttur í lítilli 45 fermetra 2 herbergja íbúð ca. 150m frá vellinum og allri æfingaaðstöðu. Við búum mjög miðsvæðis í Örebro og hjólum eða löbbum út um allt (5 mín í miðbæinn), búum ekki svo vel að eiga bíl, því miður, skemmtilegt að hjóla í matvörubúðina. Hér er allt voða kósí og við eigum ágætis nágranna.
Við vorum að fá okkur Weimaraner hvolp sem er 3 mánaða, hann heitir Emil Garpur og fer með okkur í göngutúra um borgina og nágrenni. Hann er ómótstæðilega sætur og á eftir að verða mikill fótbolta- og veiðihundur.
Þegar þú kemur heim til Íslands í frí, hvað er það fyrsta sem þú gerir?
Fyrsta sem ég geri er að knúsa fjölskylduna mína, þá mömmu mest, en við erum mjög náin og ég sakna þeirra mikið, þá er ég að tala um mína blóðfjölskyldu og tengdafjölskyldu. Guðný systir mín býr í Innri Njarðvík og þangað fer ég alltaf til að eyða tíma með henni og fjölskyldunni hennar. Oftast koma þó allir fjölskyldumeðlimirnir þangað eða þau sem búa á Íslandi, ég á eina systur sem býr í Danmörku með fjölskyldunni sinni), og við eigum góðar stundir saman, ég er þakklát fyrir að eiga þau að. Hitti vinina mína ef það er tími til þess, þakklát fyrir þá líka.
Íslenska vatnið er teigað. Matur... uh... mamma er beðin um að elda GLÆNÝJA ýsu og kartöflur, en hér fæst ekki almennilegur fiskur svona inn í landi. Uppáhaldsmaturinn minn og það er það eina sem mig langar í þegar ég kem heim.
Laugar eru ómótstæðilegt athvarf þegar ég er heima, ótrúlega flott aðstaða.
Svo klæði ég mig upp og fer út í íslenska náttúru.
Andra djúpt og nýt lífsins hvert sem ég fer.
Komdu með eina skemmtilega staðreynd um þig sem fólk veit ekki um:
Hmm... ég spilaði á trompet í mörg ár og hafði gaman af því, var í lúðrasveit með öllu tilheyrandi. Ég hefði sennilega farið út í það ef ég hefði ekki haft fótboltann og handboltann til að taka upp allan minn tíma. Tónlistin togar í mig endrum og eins og ég spila á gítar mér til ánægju og yndisauka á síðkvöldum.
Hvað værir þú að gera ef þú værir ekki atvinnumaður í fótbolta?
Ég væri sennilega að vinna/skóla og að spila fótbolta sem ekki-atvinnumaður með því... Ég er þakklát fyrir það að hafa gaman að því að vinna, geta unnið og geta notið þess að vera í kringum fólk. Ef ég hefði ekki fótboltann sem íþrótt þá væri ég sennilega að stunda hinar íþróttirnar sem ég hef áhuga á... handbolta, badminton, box, hreyfingu, líkamsrækt, fjallaferðir, skvass, snjóbretti, skallatennis :)
Áttu einhverja skemmtilega sögu frá ferlinum?
Einu sinni var... ég með núverandi þjálfara í efstu deild kvenna á Íslandi í liði. Við vorum að spila á Akureyri við stórlið Þór/KA/KS og þessi stelpa var búin að vera veik og var komin á sterk sýklalyf með tilheyrandi magakveisu sem fylgir því í flestum tilfellum - en vildi þó ekki sleppa leiknum, enda hörkukvendi á ferð. Leikurinn er í fullum gangi þegar hún snarstoppar eins og hún hafi verið skotin í magann allt í einu, hleypur upp að dómaranum og biður um leyfi til að fara aðeins útaf, sprettur síðan inn á klósett og afgreiðir vandamálið, og kemur frísk inn á aftur eftir ca. 10 mínútur. Frekar lekkert. Í sama leiknum rotast markmaður hins liðsins við að skutla sér á stöngina.
Eftir fimm ár þá verður þú....
að borga erlendar skuldir íslenskra athafnamanna og útrásarvíkinga. Vonandi byrjuð að þjálfa fótbolta og einkaþjálfa og búin að mennta mig í því sem ég vil gera í framtíðinni. Njóta lífsins með ástvinum mínum.
Sjá einnig:
Atvinnumaðurinn Emil Hall. - Fæ að vera í friði með skottið mitt
Atvinnumaðurinn Guðbjörg - Búin að splæsa í Rock Band
Atvinnumaðurinn Gunnar Heiðar: Sjómennskan heillaði alltaf
Atvinnumaðurinn Rúrik: Ævisagan ekki doðrantur ef hún kæmi núna

