Heimild: BBC
Owen Hargreaves, miðjumaður Manchester United, mun ekki leika með varaliði félagsins í kvöld eins og búist hafði verið við.
Þessi 29 ára gamli leikmaður lék síðast leik í september árið 2008 en hann hefur verið að glíma við erfið hnémeiðsli.
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hafði vonast til að Hargreaves gæti snúið til baka í varaliðsleik gegn Manchester City í kvöld en nú er ljóst að ekkert verður að því.
Hargreaves mun halda áfram að æfa og reyna að komast á fullt áður en að hann leikur sinn fyrsta leik eftir meiðslin en óvíst er hvenær það verður.



