Heimild: BBC
Þá er komið að helsta slúðrinu úr enska boltanum en pakkinn er í boði Powerade.
Joe Cole mun fara frítt frá Chelsea í sumar. Chelsea hefur boðið leikmanninum nýjan eins árs samning með 40% launalækkun og Cole líst ekki á það. (Daily Star)
Sandro, miðjumaður Internacional í Brasilíu, er farinn að læra ensku en líklegt er að hann fari til Tottenham á sex milljónir punda í sumar. (Daily Mirror)
Tottenham hefur komist að samkomulagi um að kaupa vinstri bakvörðinn Emmanuel Mbola frá Yerevan á eina milljón punda. Tottenham er núna að ræða við félög í Belgíu um að þau fái leikmanninn á láni. (Daily Mail)
Celtic hefur áhuga á að fá Jay Simpson framherja Arsenal fyrir næsta tímabil en leikmaðurinn hefur verið í láni hjá QPR í vetur. (Daily Mirror)
Franck Ribery, miðjumaður Bayern Munchen, ætlar að ákveða framtíð sína fyrir sumarið en Manchester United, Chelsea og Real Madrid hafa sýnt honum áhuga. (Imscouting)
Birmingham og Wolves eru bæði á eftir Nathaniel Clyen bakverði Crystal Palace. (Daily Mirror)
James Vaughan, framherji Everton, er á leið til Leicester á láni en hann ætlar að reyna að hjálpa liðinu að komast í úrvalsdeildina. (Daily Mirror)
Erik Nevland, framherji Fulham, mun fara frítt frá félaginu í lok tímabils en hann mun þá ganga til liðs við Viking Stavanger í Noregi. (Daily Express)
Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englendinga, segir að Wayne Rooney sé einn af þremur bestu leikmönnum í heimi en hinir tveir séu Lionel Messi og Cristiano Ronaldo. (The Sun)
Sol Campbell, varnarmaður Arsenal, vonast til að komast aftur í enska landsliðið. Campbell hóf leiktíðina hjá Notts County en gekk síðan til liðs við Arsenal í janúar. (The Sun)
Rafa Benitez, stjóri Liverpool, hefur boðað leikmenn sína á krísufund til að reyna að minnka pirringinn hjá leikmönnum. Benitez hefur verið ósáttur við ,,neikvæðar bendingar" hjá leikmönnum sínum en Liverpool er að berjast um fjórða sætið í ensku úrvalsdeildinni. (Daily Mirror)
Roy Hodgson, stjóri Fulham, vill þjálfa aftur á Ítalíu í framtíðinni en hann stýrði Udinese og Inter á sínum tíma. (Daily Mirror)
Manuel Pellegrini, þjálfari Real Madrid, mun ekki eiga góða daga á næstunni eftir að liðið datt út úr Meistaradeildinni í gærkvöldi. Spænska dagblaðið Marca segir á forsíðu sinni í dag: ,,adios champions, adios Pellegrini. Fuera." Lausleg þýðing á því er: ,,Bless Meistara(deild), bless Pellegrini. Burt" (Imscouting)
Guus Hiddink hefur samþykkt að þjálfa Fílabeinsströndina á HM í sumar ef að hann nær að losna fyrr undan samningi hjá Rússum en sá samningur gildir þar til í júlí. Eftir HM mun Hiddink taka við landsliði Tyrklands. (Daily Mail)
Alan Smith og Kevin Nolan leikmenn Newcastle munu fá ósk um að taka á sig launalækkun ef að liðið kemst aftur upp í ensku úrvalsdeildina þar sem að leikmennirnir eru báðir að fá himinhá laun eftir nýja samninga sem þeir gerðu áður en Newcastle féll í fyrra. (Daily Mirror)

