Heimild: Sporting Life
Rafael Benitez, stjóri Liverpool, vill að leikmenn liðsins byrji að taka ábyrgð í stað þess að benda alltaf á næsta mann.
Benitez var óanægður með leikmenn sína í 1-0 tapinu gegn Wigan á mánudag og hann vonast til að það verði breyting til batnaðar gegn Lille í kvöld.
,,Ég tel að það sé ekki rétt að halda því fram að það sé ekki nógu mikið traust á milli leikmanna hér," sagði Benitez.
,,Þú getur horft á síðasta tímabil sem dæmi þar sem að þessir sömu leikmenn voru að standa sig vel, spila af miklu sjálfstrausti og vinna leiki þar sem það var ekkert vandamál."
,,Gegn Wigan þá var markvörðurinn (Jose Reina) að kenna varnarmönnum um eitthvað sem fór úrskeiðis og varnarmenn voru að kenna markverðinum um."
,,Þetta gerist í leikjum en ég kann ekki að meta þetta."
,,Ef að þú ert að sýna svekkelsi með svona líkamstjáningum þá er það að senda út röng skilaboð. Þetta er ekki jákvætt og ég vil ekki sjá svona viðbrögð."
,,Ég samþykki að hver og einn leikmaður er einstakur en það er mikilvægt að sýna leiðtogahæfileika og rétta hegðun við liðsfélaga."


