Heimild: BBC
Burnley færði auglýsingaskiltin á heimavelli sínum Turf Moor fyrir leikinn gegn Stoke City í gær til að reyna að koma í veg fyrir að Rory Delap gæti tekið sín löngu innköst.
Auglýsingaskiltin voru færð einungis einum og hálfum meter frá vellinum til að Delap hefði ekki atrennu fyrir innköstin.
Þetta herbragð Burnley heppnaðist þó ekki því að Delap hljóp meðfram hliðarlínunni áður en að hann hamraði innkasti inn á teiginn þar sem að Tuncay skallaði boltann í netið.
,,Við tókum eftir því sem að þeir voru búnir að gera um leið og við komum út en við tókum því bara," sagði Tony Pulis stjóri Stoke en leikurinn í gær fór 1-1.
,,Þeir gera það sem þeir þurfa að gera. Þú þarft að taka því. Mér er sama hvaðan mörkin koma, það er alltaf gott að skora. Hann var spjótkastari á sínum tíma þannig að Rory hefur auðvitað tæknina með sér."



