Heimild: Sky
Nicklas Bendtner, framherji Arsenal, segist hafa hlegið að gagnrýninni sem að hann fékk eftir 3-1 sigur liðsins á Burnley um síðustu helgi.
Þessi 22 ára gamli Dani var gagnrýndur mikið fyrir að misnota nokkur góð færi gegn Burnley en hann svaraði gagnrýnisröddunum með því að skora þrennu gegn Porto í Meistaradeildinni í fyrradag.
,,Ég fékk gagnrýni eftir leikinn á laugardag en ég og liðsfélagar mínir hlógum bara að því," sagði Bendtner.
,,Þeir gerðu brandara með mér. Þannig horfi ég á þetta, ég hlæ. Þeir hafa allir óskað mér til hamingju með þrennuna og við hlægjum að þessu á góðan hátt."
,,Það er ótrúlega gott að skora mína fyrstu þrennu fyrir Arsenal. Hún hefur verið á leiðinni í þónokkurn tíma en núna náði ég þessu."
,,Þetta er eitt af því sem ég hef viljað afreka. Ég er mjög ánægður með að hafa fengið boltann úr leiknum sem minningargrip. Allir liðsfélagar mínir skrifuðu á hann og ég mun hafa þetta sem minningargrip fyrir mína fyrstu þrennu, þetta er klárlega ekki sú síðasta."



