Heimild: Soccerway
Kaka hefur beðið stuðningsmenn Real Madrid afsökunar eftir að liðið datt út úr Meistaradeildinni í kjölfarið á 1-1 jafntefli gegn Lyon í gær.
Kaka var einn af leikmönnunum sem Real Madrid keypti fyrir háar fjárhæðir síðastliðið sumar en hann gat ekki hjálpað liðinu að komast lengra en í 16-liða úrslit frekar en undanfarin ár.
,,Þetta er mjög mikið áfall fyrir Real Madrid. Það eina sem ég vil gera er að biðja stuðningsmennina afsökunar," sagði Kaka.
,,Við vildum allir spila úrslitaleikinn á Bernabeu en við náum því ekki. Ég hef lent í erfiðum augnablikum á ferli mínum og við munum fara saman í gegnum þetta."
,,Við sköpuðum mörg færi en nýttum þau ekki. Í Meistaradeilinni þá kostar það þig."



