Heimild: Sky
Grétar Rafn Steinsson, varnarmaður Bolton, hefur sagt liðsfélögum sínum að það sé afar mikilvægt að ná góðum úrslitum gegn nágrönnunum í Wigan um næstu helgi.
Bolton náði að sigra Wolves og West Ham á dögunum áður en liðið tapaði 4-0 gegn Sunderland í fyrradag.
Sem stendur er Bolton fimm stigum frá fallsvæðinu og Grétar vill sigur gegn Wigan til að komast ofar í töflunni.
,,Við verðum að stíga upp, taka ábyrgð og ná úrslitunum sem við þurfum að ná," sagði Grétar.
,,Við náðum frábærum úrslitum gegn Wolves og stórkostlegum úrslitum gegn West Ham þannig að leikmenn munu gefa allt sem þeir geta til að halda áfram á þessari braut."
,,Þetta verður mikilvægur grannaslagur og allir eru ákveðnir í að standa sig. Við vitum að stuðningsmennirnir standa við bakið á okkur og stuðningur þeirra er mikilvægur."


