Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 11. mars 2010 12:07
Magnús Már Einarsson
Kjartan Sigurðsson í Selfoss (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Vilbogi M. Einarsson
Selfoss hefur fengið varnarmanninn Kjartan Sigurðsson til liðs við sig frá Hamri en hann hefur gert tveggja ára samning við félagið.

Kjartan lék með Fram í öðrum og þriðja flokki áður en að hann gekk til liðs við Hamar síðastliðinn vetur.

Hjá Hamri var Kjartan fyrirliði fyrri hluta móts í fyrra en hann lék alla leiki Hamars í annarri deildinni og skoraði í þeim eitt mark.

Fyrr í vetur æfði Kjartan með Íslandsmeisturum FH en hann hefur undanfarna daga æft með Selfyssingum og um síðustu helgi lék hann æfingaleik með liðinu gegn Grindavík.

Í kjölfarið ákvað Selfoss að semja við Kjartan og hann verður með liðinu gegn Leikni í Lengjubikarnu annað kvöld.

Kjartan er þriðji leikmaðurinn sem Selfyssingar fá frá því að síðasta tímabili lauk en Ingi Rafn Ingibergsson kom einnig frá ÍBV og þjálfarinn Guðmundur Benediktsson kom frá KR.
Slapp
banner
banner