Heimild: BBC
Manuel Pellegrini, þjálfari Real Madrid, er öruggur í starfi þrátt fyrir að liðið hafi gert 1-1 jafnefli gegn Lyon í gærkvöldi og um leið dottið úr leik í Meistaradeildinni.
Real Madrid eyddi ótrúlegum fjárhæðum í leikmenn síðastliðið sumar en liðið datt út úr spænska bikarnum gegn 3.deildarliðinu Alcorcon fyrr á tímabilinu og í gær enduðu vonir liðsins um að komast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á Santiago Bernabeu.
Í kjölfarið hafa vaknað upp spurningar um það hvort að Pellegrini verði látinn fara en hann er níundi þjálfarinn sem stýrir Real Madrid síðan að Vicente Del Bosque yfirgaf félagið árið 2003.
Jorge Valdano, framkvæmdastjóri Real Madrid, segir hins vegar að Pellegrini þurfi ekki að hafa áhyggjur af starfinu.
,,Við munum virða Pellegrini því að við höfum trú á vinnu hans. Hann er samningsbundinn út næstu leiktíð og við ætlum að halda áfram með hann sem þjálfara. Tímabilið er ekki búið og það eru ennþá titill sem hægt er að berajst um," sagði Valdano en Real Madrid er með jafnmörg stig og Barcelona á toppi spænsku deildarinnar.

