Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 11. mars 2010 14:05
Magnús Már Einarsson
Heimild: Soccernet 
Emmanuel Eboue: Wenger er eins og pabbi okkar
Emmanuel Eboue segist vera hæstánægður í herbúðum Arsenal og hann ætlar ekki að fara frá félaginu á næstunni.

Eboue átti erfitt uppráttar á síðasta tímabili þar sem að hann var meðal annars tekinn út af eftir að hafa komið inn á sem varamaður gegn Wigan.

Í kjölfarið fór af stað orðrómur um að Eboue væri á förum en hann hefur engan áhuga á að fara annað.

,,Ég talaði aldrei við neinn eða sagðist vilja fara. Ég á tvö ár eftir af samningi mínum hjá Arsenal og mér líður mjög vel hér, sagði Eboue.

,,Ég vil vinna eitthvað fyrir félagið því að það hefur hjálpað mér svo mikið. Þegar að við eigum slæman dag þá stendur Arsene Wenger alltaf við bakið á okkur og mér finnst hann vera eins og pabbi okkar hér, við erum allir ánægðir með að spila undir stjórn hans."

Eboue skoraði fjórða mark Arsenal í 5-0 sigrinum á Porto í fyrradag en hann lék þá á Helton í markinu og renndi boltanum í netið. Þetta var einungis níunda mark hans með Arsenal.

,,Á hverjum degi hlægja leikmannirnir að mér og segja: 'Emmanuel, þú gerir allt rétt en þegar að þú kemur að markverðinum ertu hræddur við að skora.' Þess vegna reyni ég að sýna þeim að ég get skorað og ég er mjög ánægður."
Slapp
banner