Guðmundur Reynir Gunnarsson, leikmaður GAIS í Svíþjóð, leikur með KR ef hann leikur hér á landi í sumar. Guðmundur Reynir hefur ekki ennþá fengið leyfi GAIS til að fara frá þeim á láni í sumar. Hann hefur þó rætt við félög hér á landi og ákveðið að leika með KR komi hann heim.
Guðmundur Reynir kom til Íslands í vikunni en ennþá er möguleiki á að hann fari aftur út til GAIS og leiki áfram með liðinu. Þetta staðfesti Gunnar Guðmundsson faðir hans við Fótbolta.net í dag.
,,Menn hafa ekki alveg náð saman um það hvað verður. Það standa ennþá yfir samningaviðræður við GAIS þannig að svo gæti farið að hann fari aftur út," sagði Gunnar við Fótbolta.net í dag.
Nokkur félög hafa sýnt Guðmundi áhuga undanfarna daga og þar á meðal er Keflavík en nú er ljóst að leikmaðurinn fer í KR ef að hann kemur til Íslands.
Guðmundur Reynir er uppalinn hjá KR en hann var í láni hjá félaginu síðari hlutann á síðasta tímabili þar sem að hann lék sjö leiki í Pepsi-deildinni og tvo í VISA-bikarnum.
Þessi 21 árs gamli vinstri kantmaður og bakvörður gekk til liðs við GAIS haustið 2008 en hann hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá sænska félaginu.


