Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 11. mars 2010 16:18
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Wenger hefur ekki áhyggjur af því að Gallas fari annað
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, vill halda William Gallas hjá félaginu og hann segist ekki hafa áhyggjur af því að franski varnarmaðurinn semji við annað félag þrátt fyrir að samningur hans renni út í lok júní.

Gallas, sem er 32 ára, hefur verið orðaður við Roma en Wenger ætlar að halda leikmanninum.

,,Ég er ekki áhyggjufullur. Hann er samningsbundinn þar til 30.júní. Við höfum ekki náð samkomulagi ennþá en ég hitti umboðsmann hans á þriðjudag og við munum vonandi finna lausn," sagði Wenger.

,,Ég vil halda þessu öllu leyndu. Mér finnst að ég verði að virða báða aðila og þar með vil ég ekki segja neitt um samningaviðræður."

,,Ég veit ekki hvort að hann hafi talað við Roma en hann er samningslaus og getur talað við hverja sem hann vill. William er að ræða við okkur og við viljum halda honum hér. Ég held að hann vilji vera áfram hér."

Slapp
banner
banner