Varalið Liverpool sigraði Tranmere Rovers nokkuð örugglega með þremum mörkum gegn engu í undanúrslitum Senior bikarsins.
Lauri Dalla Valle, David Amoo og sjálfsmark frá Tranmere skilaði þessum örugga sigri, en nú mætir liðið annaðhvort varaliði Everton eða Skelmersdale í úrslitaleiknum sjálfum um þennan bikar.
Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn fyrir Liverpool í miðverði og þótti standa sig mjög vel, en varaliðið var að leika sinn fyrsta leik í rúmlega mánuð þar sem alltaf hefur verið frestað leikjum vegna vallaraðstæðna.
Stephen Darby sem er fyrirliði varaliðsins er á leið á láni til Swindon Town í ensku annarri deildinni og því spurning hvort Guðlaugur taki við fyrirliðabandinu það sem eftir er af tímabilinu.


